Inga Björk

Má bjóða þér innfyrir?

07.01.2008 15:22:10 / ingabj

Gleðilegt árið!

Ég óska ykkur lesendur góðir, gleðilegt árið og þakka liðið.

Jólin búin, ég átti alveg fínustu jól en ég er voða fegin að þau eru búin. Þetta voru óvenju erfið jól, erfitt að fara í heimsóknir, erfitt að fara í föt, erfitt að borða svona mikið. Mjög skrýtin tilfinning þegar ALLT er orðið svona erfitt, án þess að þetta "erfitt" sé lýsing á einhverjri dramatík eða átökum, heldur bumban bara orðin svo stór að það er allt erfitt, meira að segja að ´klæða sig í buxur. Ég þakka fyrir jólakort, jólagjafir og kveðjur.

Já bumban er ennþá föst á mér og ekkert barn mætt á svæðið. Ég var reyndar upphaflega skráð 11.janúar,þannig að ég verð nú að halda ró minni í nokkra daga í viðbót. Þann 18.janúar verð ég gengin 2 vikur fram yfir og þá verður e-ð reynt að ýta hressilega við gangi mála. Annars er þetta hálfgert lottó þessa dagana, þar sem mjög margir sem ég þekki og tengist eiga afmæli núna þessa dagana og slegist er um að fá barnið í afmælisgjöf;) Einar á einmitt afmæli 12. janúar en ég hefði nú helst viljað koma með það fyrr;) En heilsan hjá mér og barninu er mjög góð, en ég er ansi þreytt í skrokknum og geðheilsan mjög misgóð eftir dögum og klukkutímum!

En það er lítið annað í stöðunni en að bíða róleg bara og halda áfram að safna orku og reyna að hugsa um húsið og fjölskylduna.

Okkur einari vantar slatta af símanúmerum,erum bæði búin að vera í farsíma vandræðum undanfarið, þeir að bila og deyja og þar með að týna númerum:(. Þannig að ef þið viljið fá sms- þegar barnið fæðist þá endilega sendið mér sms til öryggis, til að vera viss um ég sé með númerin ykkar, þeir sem ég hef verið í sms eða símasambandi við eftir jól og áramót eru öruggir. En annars segi ég bara endilega sendið mér góða strauma og gangi ykkur vel að koma ykkur í gang aftur eftir hátíðarnar.

pabbi skrifaði
sæl Inga mín. já ég er nú ekki hissa að manskapurin sem á afmæli vilji fá hana á sínum deigi í heimin,ef hun mun líkjast systur sinni, vonum það besta að þú komir með hana 12 jan það væri nú mikil gjöf fyrir pabban. en það er vika þangað til ég kem til Íslands mikið hlakkar mér til að geta verið nálægt þegar að þessu kemur ,hafðu það gott elskan min hlakka til að sjá þig.kv Pabbi
Lára skrifaði
Vúff! Ef þú ferð fram á 18. þá verðuru að halda í þér yfir miðnættið - því þá fæ ég hana í afmælisgjöf ;) Nei annars, vonum að barnið mæti á svæðið um næstu helgi, það væri nú ljúft! sendi strauma til þín og kyrja "komdu niður, kvað hún amma, komdu niður sögðu pabbi og mamma...."

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Uppskriftasíður