Inga Björk

Má bjóða þér innfyrir?

26.09.2007 09:28:58 / ingabj

Klukkið...

Það er langt síðan einhver skemmtilegur leikur hefur komið hérna inn á bloggið mitt, þannig að ég ætla bara að vera með í leiknum. Ásta vinkona klukkaði mig og ég á að koma með 8 staðreyndir um mig...

-Númer eitt og tvö mun að sjálfsögðu fjalla um blessuð börnin mín. Ég á eina dóttir sem er 9 mánaða og annað barn á leiðinni!

- Litla fjölskyldan mín mun stækka úr 2 í 4 á rúmlega einu ári!

- Ég á frábæra stór fjölskyldu og tengdafjölskyldu og vini sem eru að hjálpa okkur mjög mikið þessa dagana í öllu því sem gengur á hjá okkur.

- Ég er að gera upp gamalt hús út í sveit (alein, hahaha);)

- Ég elska ís(sérstaklega brynjuís með heitri súkkulaðisósu)

- ég elska að ferðast!

- Ég hef ekki dottið í það mjögggg lengi;:haha:

- Ég elska Greys Anatomy sjónvarpsþættina, svo mikið að það jaðrar við fíkn!

 

Jæja þá er ég búin að fræða ykkur um nokkra staðreyndir um sjálfa mig. Ég ætla að klukka Mömmu, Söndru, Sólveigu, Láru, Pétur Guð, Lilju, humm verð að láta þetta duga í bili:) dettur ekki fleiri í hug.

Kveðja Inga Björk

 

 

Lára skrifaði
darn! Jæja, ég skal reyna að hugsa upp einhverjar sniðugar staðreyndir um sjálfa mig - annars hef ég tekið svo oft þátt í svona að það er lítið eftir! hehe
Ásta skrifaði
ánægð með þig vinkona, að svara klukkinu mínu. Takk fyrir síðast og gaman að koma í sveitina og sjá húsið. Og ég elska líka Brynju ís og klikkaði illilega á því að fá mér ís fyrir norðan, við gerum ferð í Brynju næst......ekki satt?
Kristbjörg skrifaði
Langaði bara að kvitta fyrir mig, er ekki nógu dugleg að kíkja hingað inn en er þeim mun duglegri að kíkja inn á síðuna hennar Jóhönnu Margrétar;) Lofa bót og betrun;) Hafið það gott öll fjögur;) Knús og kossar frá Danmörku
Jóhanna G skrifaði
Grey s.. óóóójá :o)
Sólveig skrifaði
Hmmm... klukk segirðu??!! jibbí :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Uppskriftasíður