Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar ,elskurnar mínar. Við héldum
smá afmælisveislu í samtúni á laugardagskvöldið og holu grilluðum
læri og gistum í fellihýsi út í garði
BAra svona eins og í gamla
daga þegar maður fékk að tjalda út í garði með vinkonum sínum
svaka stuð! ágætt að æfa jóhönnu margréti í útilegum sem
fyrst...
Ég fékk fullt af flottum afmælisgjöfum, hélt að svona "gamalt"
fólk væri hætt að fá svona margar afmælisgjafir. Einar gaf mér ipod
shuffle, sem er pínulítill mp3 spilar, sennilega vita flestir hvað
það er þó ég sé voðalega lítið að fylgjast með nýjustu tísku þessa
dagana. ÉG man nú þegar ég átti "risastóran" walkman kassettu tæki
og hlustaði á 2unlimited á meðan ég var að bera út dagskránna hérna
í denn. Það var nú toppurinn. Núna þarf ég að passa að týna ekki
þessu litla tæki, því það er minna en snuddan hennar jóhönnu
margrétar og það komast 240 lög á hann.
http://store.apple.com/1-800-MY-APPLE/WebObjects/AppleStore?family=iPodshuffle
minn er appelsínugulur.
í næstu viku fer ég að vinna allan daginn, hálfátta til 16. Það
verða viðbrigði en það er búið að vera fínt að hafa smá
aðlögunartíma. Þau hafa það mjög gott saman á morgnana þau feðgin,
reyndar er pabbinn ansi þreyttur þar sem hann er oft að vinna í
sveitinni langt fram undir nótt, en svona er þetta, nóg að gera á
sumrin hjá okkar fjölskyldu...
ciao