Góðan daginn góðir lesendur
Ný færsla rituð óvenju snemma dags
Var vöknuð fyrir allar aldir út af engu, eða svona þannig, engu sem angraði mig allavegana! Barnið í bumbunni farið að láta mömmu sína vakna þegar því hentar og stundum oft á næturnar. Verið að æfa brjóstagjafaferlið grunar mig
Fjölskyldan er nú búin að búa í Mið-Samtúni í nokkrar vikur og við erum að aðlagast því að vera hluti af stærra fjölskyldumynstri. Það gengur vel, en er að sjálfsögðu enginn dans á rósum, sérstaklega þar sem skapið í mér er ansi stormasamt þessa dagana,við skulum kalla það hormónasveiflur
Síðasta vika fór öll í veikindi hjá okkur þremur, eins og það sé tími í e-ð svoleiðis, en það þýðir ekkert að spyrja að þvi. En við vorum búin að ná að skríða öll sæmilega saman um helgina og gátum því mætt í afmælisveisluna hennar Jóhönnu Margrétar, sem afi og amma héldu í Oddeyrargötunni fyrir hana. Ég treysti mér alls ekki í svoleiðis bras í mínu ástandi og þau voru svo elskulega að bjóða fram sína aðstöðu og aðstoð!
Við foreldrarnir fórum í það saman að baka fyrstu afmælisköku prinsessunnar og hún átti sko að verða flottasta kaka í öllum heiminum. Laugardagskvöldið var tekið frá með Einar í fararborddi þar sem hann er klárari í súkkulaði kökum en ég
Við skelltum í 2 hringlaga form, ætluðum síðan að föndra úr þessu kanínuköku. Síðan þegar við tókum kökurnar úr formunum,voða ánægð með afraksturinn þá kom í ljós að önnur var hrá í miðjunni og hin var brunninn
úbs,það var lítið annað hægt að gera en að búa til aðra. Kakan hafðist í annarri tilraun og meira segja ljómandi vel. Hún smakkaðist líka alveg prýðilega. Hægt að sjá mynd úr afmælinu á www.jme.barnaland.is Veislan var mjög fín og jóhanna margrét skartaði sínu fegursta í prinsessukjólnum sínum.
En annars er það bara jólaundirbúningur, sem frestaðist um viku sökum veikinda, og önnur almenn störf sem eru framundan. Heilsan hjá mér er fín, og bumbubúinn bara hress. Er reyndar orðin ansi þreytt og bumban orðin verulegu stór. Rúmar 2 vikur í settan dag, ekki laust við að maður sé orðin svolítið spenntur að fá krílið í hendurnar
Segi það gott í bili, farið ykkur hægt í umferðinni og reynið að láta jólastressið ekki ná ykkur. Muniði, þetta reddast allt saman
Með jólakveðju úr samtúni, Inga Björk